Fyrir þó nokkru var ég djúpt sokkinn í rannsóknarvinnu, á YouTube, og rakst á myndband þar sem vatnsræktun var stunduð án dælu. Mín fyrsta hugsun var að þetta gæti ekki staðist. Augljóslega væri verið að plata fólk út í einhverja vitleysu. En ég horfði á allt myndbandið og mörg önnur frá sama aðila. Hann var með alls kyns aðra fræðslu sem stóðst, svo af hverju ekki þetta?

Ég fór að skoða málið betur og fann efni sem staðfesti að aðferðin væri raunveruleg. Nú langar mig að kynna ykkur Kratky-aðferðina. Hún er kennd við B. A. Kratky við Háskólann á Hawaii og byggist á því að láta vatnsborðið lækka eftir því sem plantan nýtir næringarlausnina.

Þrátt fyrir að vera græjufíkill og finnast hefðbundin vatnsrækt yndisleg þá hentar hún ekki alltaf. Í mörgum kerfum þarf dælur, leiðslur, forðabúr, loftsteina eða tímarofa. Fyrir græjufíkla er þetta allt æði, en stundum er minimalismi málið.

Salat í netapotti yfir næringarlausn; skýringargluggi á Kratky-tanki sýnir loftbil og rætur sem ná niður í vatnið.
Í Kratky-ræktun myndast loftbil þegar vatnsborðið lækkar. Hluti rótanna er í loftinu en aðrar ná niður í næringarlausnina. Gagnsæ framhliðin sýnir innviði; venjulegur tankur á að útiloka ljós.
Mynd: RBHMMX · CC BY 4.0.

Hvernig virkar þetta?

Í grunninn líkist kerfið djúpvatnsræktun: plantan er í netapotti yfir forðabúri með næringarlausn. Munurinn er að Kratky notar hvorki vatnsdælu né loftdælu. Í byrjun nær neðsti hluti pottsins ofan í lausnina og ræktunarefnið dregur vatn upp að ungu plöntunni.

Þegar plantan vex og tekur upp vatn lækkar lausnarborðið. Ræturnar vaxa niður í lausnina en yfir henni myndast rakt loftbil. Rætur í því loftbili fá súrefni úr loftinu; neðri hluti rótarkerfisins sækir vatn og næringu í lausnina.

Loftbilið er því hluti af kerfinu. Það er ekki merki um að gleymst hafi að fylla á.

Ein áfylling getur dugað

Í einföldustu útfærslunni er sett næg næringarlausn í ílátið í upphafi til að hún endist fram að uppskeru. Þá þarf ekki að fylla á á meðan ræktuninni stendur. Það verður varla einfaldara en það!

Þetta á þó aðeins við þegar vatnsmagn, planta og ræktunartími passa saman. Salat og aðrar laufplöntur með stuttan ræktunartíma eru hentugur útgangspunktur. Stór tómataplanta sem á að gefa aldin í langan tíma gerir allt aðrar kröfur til forðans.

Í salatrannsókn Kratkys frá 2009 var laufsalat og salat með lausum haus yfirleitt uppskorið um 6–7 vikum eftir sáningu. Það er lýsing á viðkomandi ræktun, ekki föst uppskrift fyrir íslenskan glugga. Ljós, hiti og yrki ráða miklu um hversu hratt plantan vex.

Það sem þarf

  • Ljóshelt ílát með loki og nægu rými fyrir næringarlausn og rætur.
  • Netapott eða sambærilega festingu sem heldur plöntunni stöðugri.
  • Ræktunarefni sem heldur ungu plöntunni og leiðir raka að henni.
  • Vatnsræktunaráburð sem veitir öll nauðsynleg næringarefni og vatn.
  • Nægt ljós og aðstæður sem henta plöntunni.

Ég myndi gefa ungum plöntum tíma til að róta sig í pottunum áður en þær fara í kerfið. Skoðið ræturnar frekar en dagatalið: þær þurfa að geta náð til lausnarinnar þegar vatnsborðið lækkar.

Þrífið ílátið og blandið næringuna samkvæmt leiðbeiningum viðkomandi áburðar fyrir plöntuna. Setjið pottinn þannig að neðsti hluti ræktunarefnisins fái raka í byrjun. Ekki setja alla plöntuna eða allan pottinn á kaf.

Ekki kaffæra loftbilið

Þegar rætur hafa aðlagast raka loftinu má ekki fylla aftur upp að upphaflega vatnsborðinu og kaffæra þær. Þannig getur einföld áfylling eyðilagt það sem gerir aðferðina mögulega.

Ef lausnin er að klárast áður en uppskeru er náð þarf að bæta varlega við og halda þeim hluta rótarkerfisins sem sér um loftun yfir lausninni. Áfylling er því möguleg með réttri stjórnun vatnsborðsins; hún er ekki sama aðgerð og að fylla loftað djúpvatnskerfi.

Fylgist líka með því að ræturnar nái áfram niður í lausnina. Loftbil eitt og sér hjálpar ekki ef neðri ræturnar standa orðið alveg þurrar.

Einfalt kerfi þarf samt eftirlit

Lok og ljóshelt ílát draga úr birtu í næringarlausninni og þar með þörungavexti. Haldið plöntuleifum frá lausninni og athugið vatnsborð og ástand plöntunnar reglulega. Við lengri ræktun er gagnlegt að fylgjast með sýrustigi og leiðnitölu fremur en að gera ráð fyrir að lausnin haldist óbreytt.

Við inniræktun hér á landi þarf einnig að hugsa um birtuna, sérstaklega að vetri. Kerfið sjálft þarf ekki rafmagn til að dæla eða lofta, en gróðurlýsing getur samt þurft rafmagn. Kratky leysir vökvunina með einföldum hætti; plantan þarf áfram ljós, næringu og hentugan hita.

Sjá einnig