-
Kóríander (Coriandrum sativum) Coriander, Cilantro
Kóríanderjurtin er aðallega notuð í mat á tvo vegu, laufin eða fræin. Einnig er þó hægt að nota rætur plöntunnar, þær eru bragðmeiri en laufblöðin. Fræin kallast coriander á ensku en laufin cilantro. Laufin eru oft notuð í asíska matargerð og alls kyns salöt. Yfirleitt eru þau notuð í óeldaða rétti eða bætt út í eldaðan mat rétt í lokin vegna þess að þau þola eldun ekki vel. Fræin eru mjög þægileg því hægt er að setja þau í piparkvörn. Sumum finnst gott að léttsteikja fræin áður en þau eru sett í piparkvörnina og segja að það breyti bragðinu til hins betra. Fræin er hægt að nota í allskyns mat eftir smekk.
-
Tómataplöntur 2024
Eruð þið tilbúin fyrir tómataplöntur?
Þær geta ekki beðið mikið lengur.
Ef þið viljið fá plöntur hjá okkur þá eru þær tilbúnar til afhendingar. Þetta árið erum við með mun færri plöntur en vanalega og því takmarkað upplag í boði. Hægt er að finna meiri upplýsingar um hvert yrki með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan. Stykkið er á þúsund krónur.Garðablóðberg/Timjan (Thymus vulgaris) Thyme
Garðablóðberg hentar vel vel með flestum mat, flestu kjöti, pottréttum og grænmetisréttum ásamt því að vera gott í brauðbakstur, pizzur, krydd-olíur og smjör. Sítrónu Garðablóðberg er frábært með fisk og kjúklingi. Varist að nota of mikið, byrjið smátt.
Næring
Að tryggja að plöntur fái öll nauðsynleg næringarefni sem þær þurfa á að halda er mikilvægur þáttur til að fá sem mestan vöxt, þroska og uppskeru. Hér verður farið yfir helstu grunnatriði er varða næringu.