Eruð þið tilbúin fyrir tómataplöntur?
Þær geta ekki beðið mikið lengur.
Í vatnsrækt er engin mold notuð, aðeins þarf vatn, næringu, ljós og umhyggju
Hægt er að rækta flest allar plöntur, kryddjurtir, ávexti og ber allan ársins hring ef þær fá nægilegt ljós. Vatnsræktun er besta leiðin til að rækta inni og það kemur oft fólki á óvart hversu auðvelt er að rækta í vatnsrækt, hvaða plöntur er hægt að rækta og hversu vel þær vaxa , dæmi um plöntur sem vaxa vel í vatnsrækt eru; Kaktus, Aloe vera, Jarðaber, Tómatar, Chillí, Paprikur, Kaffi, Basil, Gúrkur og margt annað
Síða 4 af 4
-
Bergmynta (Origanum vulgare) Oregano
Bergmynta er sumstaðar þekkt sem "pizzukryddið". Ef laufin eru þurrkuð og notuð sem krydd þá verður bragðið dýpra og mildara en þegar hún er notuð fersk. Kryddið er notað í ýmsa tómatrétti, á fisk, steikt grænmeti og flest kjöt. Passið að nota ekki of mikið af kryddinu, byrjið smátt.
-
Mynta (Mentha) Mint
Til eru margar tegundir af myntum, þekktastar eru mynta og piparmynta. Mynta er mikið notuð í drykki eins og mojito eða heitt og kalt te. Einnig gefur hún salati ferskan blæ. Hún bætir lykt í húsum og gefur ferskan andadrátt ef hún er tuggin. Ýmsum meindýrum er illa við lyktina af henni og því sniðugt að hafa hana í kringum grænmetisgarðinn.
-
Tómataplöntur 2024
Eruð þið tilbúin fyrir tómataplöntur?
Þær geta ekki beðið mikið lengur.
Ef þið viljið fá plöntur hjá okkur þá eru þær tilbúnar til afhendingar. Þetta árið erum við með mun færri plöntur en vanalega og því takmarkað upplag í boði. Hægt er að finna meiri upplýsingar um hvert yrki með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan. Stykkið er á þúsund krónur.Næring
Að tryggja að plöntur fái öll nauðsynleg næringarefni sem þær þurfa á að halda er mikilvægur þáttur til að fá sem mestan vöxt, þroska og uppskeru. Hér verður farið yfir helstu grunnatriði er varða næringu.